1.deildin: Þór komið í efsta sætið eftir 3-0 sigur á KA

2.9.2010 | 22.21 | Boltinn
Það var Akureyraslagur fyrir norðan í kvöld þegar KA og Þór mættust. Leikurinn var aldrei í hættu og unnu Þórsarar öruggan og auðveldan, 3-0, sigur á grönnum sínum í KA sem liggja um miðja deild. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir KA því Atli Sigurjónsson nýtti sér markmannsmistök Sándor Matus eftir fimm mínútur og á 23. mínútu kom Þorsteinn Ingason Þór í 2-0. Á 71. kláraði Sigurður Marinó Kristjánsson svo leikinn með marki nánast frá miðju, eftir herfileg mistök Matusar í markinu.

Þórsarar sitja því efstir með 40 stig, Víkingur R. og Leiknir koma í humátt á eftir með 39 stig - en eiga þó bæði síðarnefndu liðin leik til góða.





Herbalife