Bebé ekki í Meistaradeildarhóp Man. Utd.

5.9.2010 | 08.04 | Anton Ingi

Bebé, sem var keyptur til Manchester United fyrir tímabilið, er ekki í leikmannahóp liðsins fyrir riðilinn í Meistaradeildinni. Þetta kemur gríðarlega á óvart, en Bebé var keyptur til liðsins fyrir sjö milljónir punda fyrir tímabilið.

Owen Hargreaves verður einnig ekki með, en hann hefur verið gífurlega mikið meiddur. Hann var þá talinn á batavegi undir lok síðasta tímabils, en hann kom inná í einum deildarleik sem varamaður og spilaði þónokkra varaliðsleiki.

Ekki er hægt að breyta hópnum fyrr en eftir riðlakeppnina, en þegar komið er í 16-liða úrslitin gæti fólk séð Bebé og Hargreaves.






Herbalife