Byrjunarlið Íslands gegn Dönum í undankeppni EM 2012

7.9.2010 | 14.45 | Boltinn
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt gegn Dönum í undankeppni EM 2012, en íslenska liðið mætir því danska á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld.  Tvær breytingar eru gerðar á liðinu frá því í leiknum gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli á föstudag.  Birkir Már Sævarsson kemur inn í hægri bakvörðinn í stað Grétars Rafns Steinssonar, sem meiddist gegn Noregi og er ekki með í kvöld.  Þá kemur Rúrik Gíslason á hægri kantinn og Gylfi Sigurðsson er færður í sóknartengiliðinn í stað Veigars Páls Sigurðssonar, sem tekur sæti á bekknum.

Markvörður
Gunnleifur Gunnleifsson

Hægri bakvörður
Birkir Már Sævarsson

Vinstri bakvörður
Indriði Sigurðsson

Miðverðir
Sölvi Geir Ottesen fyrirliði og Kristján Örn Sigurðsson

Miðtengiliðir
Aron Einar Gunnarsson og Eggert Gunnþór Jónsson

Sóknartengiliður
Gylfi Sigurðsson

Hægri kantmaður
Rúrik Gíslason

Vinstri kantmaður
Jóhann Berg Guðmundsson

Utan hóps að þessu sinni verða Bjarni Ólafur Eiríksson, Matthías Vilhjálmsson, Baldur Sigurðsson og Ingvar Þór Kale.

 




Herbalife