Grátlegt tap fyrir Dönum

7.9.2010 | 21.11 | Anton Ingi

Íslenska A-landsliðið í karlaknattspyrnu tapaði í kvöld fyrir Danmörku á grátlegan hátt í undankeppni Evrópumótsins 2012. Ólafur Jóhannesson getur verið sáttur með sína menn, en lærirsveinar hans börðust eins og grenjandi ljón. Þó skilaði það ekki árangri því Danir skoruðu sigurmarkið á 91.mínútu.

Það var unun að horfa á íslenska liðið í kvöld; liðið barðist um hvern einasta bolta og eins og Ólafur sagði á blaðamannafundi í gær að liðið ætlaði að berjast fyrir þessu stigi. Það varð raunin því frábært var að sjá liðið sem hlupu eins og hundar útum allan völl og voru sér og þjóð sinni til sóma.

Íslenska liðið fékk nokkur gullin tækifæri til að skora þó Danir hafi verið meira með boltann. Thomas Kahlenberg skoraði svo á 91. mínútu eftir vandræðagang í vörn Íslands þar sem Sölvi Geir datt um Indriða Sigurðsson og boltinn rúllaði í fjærhornið eftir að Kahlenberg hefði nánast ekki hitt boltann, en inn fór hann. Grátleg úrslit fyrir strákana okkar sem þó stóðu sig með prýði!






Herbalife