Hafa Real Madrid áhuga á Gareth Bale?

6.9.2010 | 10.39 | Anton Ingi

Fjölmiðlar í Bretlandi og víðar eru uppfullir á þeim fréttum í morgunsárið að Gareth Bale, leikmaður Tottenham, sé á óskalista spænska stórliðsins Real Madrid - en Real hefur verið að fylgjast með leikmanninum síðustu mánuði samkvæmt breskum fjölmiðlum.

Bale hefur farið frábærlega af stað með Tottenham í vetur, en hann kom frá Southampton árið 2007. Leikur hans hefur verið mjög kaflaskiptur, en taka má mark á því að hann er einungis 21 árs og á klárlega framtíðina fyrir sér í boltanum. Hann á m.a. 25 landsleiki fyrir A-landslið Wales og vera búin með 25 leiki aðeins 17 ára gamall er nokkuð gott.






Herbalife