Ísland - Danmörk í kvöld - beint á Stöð2 Sport
7.9.2010 | 09.50 | Boltinn
Íslenska landsliðið leikur sinn annan leik í undankeppni EM 2012 er liðið sækir Dani heim á Parken. Íslenska liðið tapaði fyrir Norðmönnum hér heima á föstudaginn 2-1 og voru að marga mati mikil batamerki á liðinu frá síðustu leikjum. Íslands hefur spilað 20 leiki við Dani og tapað 16 og gert fjögur jafntefli. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:15 og er í beinni á Stöð2 Sport.