Ísland - Noregur á morgun | Allir á völlinn!

2.9.2010 | 17.01 | Anton Ingi

Senn líður að stórleik Íslands og Noregs fer fram á Laugardalsvelli, föstudaginn 3. september kl. 19:00. Miðasala er í fullum gangi og um að gera fyrir knattspyrnuáhugafólk að tryggja sér miða á þennan fyrsta leik Íslendinga í undankeppni EM 2012. 

Það eru þrjú miðaverð í boði á þennan leik og er 500 króna afsláttur á miðaverði ef keypt er í forsölu á netinu.  Börn 16 ára og yngri fá miða með 50% afslætti og reiknast sá afsláttur af fullu verði.

Á leikdegi verður einnig hægt að kaupa miða í miðasölu Laugardalsvallar og hefst miðasala þar kl. 10:00.

Miðaverð (í forsölu til og með 2. september)
Rautt Svæði, 5.000 kr (4.500 í forsölu)
Blátt Svæði, 3.500 kr (3.000 í forsölu)
Grænt Svæði, 2.000 kr (1.500 í forsölu)

ATH 50% afsláttur er fyrir börn, 16 ára og yngri. (afsláttur reiknaður frá fullu verði)






Herbalife