Ísland tapaði fyrir Tékklandi en kemst samt í umspil
7.9.2010 | 17.10 | Anton Ingi
Íslenska undir 21 árs landsliðið komst í dag í umspil um laust sæti á EM 2011, en sú keppni fer fram í Danmörku. Íslenska liðið beið í lægri hlut fyrir sterku liði Tékklands, en lokatölur urðu í Tékklandi, 3-1, fyrir heimamönnum.
Tékkar komust í 3-0 áður en Alfreð Finnbogason minnkaði muninn með glæsilegu marki þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Margir sterkir leikmenn íslenska liðsins voru ekki með s.s. Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Birkir Bjarnason, Eggert Gunnþór Jónsson sem hafa verið fastamenn í liðinu. Þeir eru nú með A-landsliðinu sem mætir Danmörku nú klukkan 6.
Dregið verður í umspilið næstkomandi föstudag. Ísland kemst á þriðja besta árangri í öðru sæti, en Spánverjar og Englendingar voru með 19 stig það fyrrnefnda og 17 það síðarnefnd - samkvæmt vefsíðunni Fótbolti.net.