Kolbeinn í Feyenoord?

2.4.2011 | 19.58 | Anton Ingi

Kolbeinn Sigþórsson leikmaður A og U-21 árs landsliðum Íslands er í dag orðaður við Feyenoord í Hollenskum miðlum.

Hlutverk Kolbeins væri að fylla skarð Luc Castaignos, sem mun ganga í raðir Inter Milan í sumar. Stjóri Feyenoord vill ekki tjá sig um þetta en ljóst er að áhuginn á Kolbeini er mikill en hann hefur spilað virkilega vel í vetur með AZ Alkmaar. Kolbeinn hefur meðal annars verið orðaður við stórlið Newcastle og Fulham.

Líklega verður mikið fylgst með Kolbeini í sumar með U-21 árs liðinu í sumar á EM.






Herbalife