Kolbeinn meiddur - EM í hættu?
3.4.2011 | 17.24 | Anton Ingi
Kolbeinn Sigþórsson fór útaf meiddur í gær í leik AZ Alkmaar gegn Feyenoord.
Kolbeinn fór útaf á 26. mínútu eftir að hafa fengið þungt högg á ökklann. Þjálfari Kolbeins segir að þetta geti verið allt frá þremur vikum upp í 1 og hálfan mánuð en tímabilið í Hollandi lýkur eftir þann tíma.
Þetta er mikið áfall fyrir Íslenska U-21 árs landsliðið sem hefur keppni á Evrópumótinu eftir tvo mánuði.