Lippi í stjórastólinn á Brúnni?

13.4.2011 | 21.56 | Anton Ingi
Marcelo Lippi segir í viðtali í dag að hann hafi mikinn áhuga á að taka við liði í Ensku Úrvaldsdeildinni, en hann hefur ekki þjálfað síðan hann var rekinn sem stjóri Ítalska landsliðsins.

Mikið hefur verið rætt og ritað um stöðu Carlo Ancelotti stjóra Chelsea og framtið hans hjá félaginu en liðið á ekki raunhæfa möguleika á titli á þessari leiktíð. Hitinn undir stól Carlo hækkaði að öllum líkindum um nokkrar gráður þegar Chelsea datt útúr meistaradeildinni en Roman Abramovich eigandi Chelsea hefur þá þráhyggju að vinna deild þeirra bestu.

Lippi segist sakna þess að þjálfa en það er langt síðan að hann þjálfaði seinast félagslið.





Herbalife