Meistaradeildin: Schalke, Barcelona, Man Utd og Real í góðum málum
6.4.2011 | 23.08 | Anton Ingi
Fyrri leikjunum í 8-liða úrslitum Meistaradeildar er lokið. Í gær lagði Real Madrid Tottenham 4-0 með tveimur mörkum frá Emmanuel Adebayor, einu frá Ronaldo og einu frá Dí María. Peter Crouch var vikið af velli snemma leiks og því ljóst að róðurinn væri þungur fyrir Tottenham.
Í gærkvöldi mættust einnig Inter og Schalke á Ítalíu og þar urðu óvænt tíðindi. Schalke vann frábæran 5-2 sigur og eru því í vænlegri stöðu fyrir seinni leikinn.
Stórleikur kvöldsins var klárlega viðurreign Chelsea og Manchester United. Wayne Rooney kom Man Utd yfir í fyrri hálfleik og hélst staðan þannig út leikinn. Chelsea gerði tilkall til vítaspyrnu, en dómarinn lét sér fátt um finnast við mikla reiði Chelsea-manna.
Barcelona pakkaði svo Shaktar Donetsk saman í síðasta leiknum í 8-liðaúrslitunum, 5-1. Úrslit og markaskorara má sjá hér að neðan.
Inter Milan 2-5 Schalke:
1-0 Dejan Stankovic ('1)
1-1 Joel Matip ('17)
2-1 Diego Milito ('34)
2-2 Edu ('40)
2-3 Raul ('53)
2-4 Andrea Ranocchia ('57, sjálfsmark)
2-5 Edu ('75)
Rautt spjald: Christian Chivu ('61)
Real Madrid 4-0 Tottenham Hotspur
1-0 Emmanuel Adebayor ('5)
2-0 Emmanuel Adebayor ('57)
3-0 Angel Di Maria ('72)
4-0 Cristiano Ronaldo ('87)
Rautt spjald: Peter Crouch ('15)
Chelsea 0 - 1 Manchester United:
0-1 Wayne Rooney (´24)
Barcelona 5 - 1 Shaktar Donetsk:
1-0 Andres Iniesta (2)
2-0 Daniel Alves (34)
3-0 Gerard Pique (53)
3-1 Yaroslav Ratkitskiy (59)
4-1 Seydou Keita (60)
5-1 Xavi (86)