Meistaradeildin: Þrjú rauð þegar Barcelona vann Real Madrid

27.4.2011 | 22.49 | Anton Ingi
Barcelona unnu í kvöld Real Madrid með nokkrum yfirburðum á Santiago Bernabeu í undanúrslitum meistaradeildarinnar.

Fyrri hálfleikur var vægast sagt bragðdaufur og stóð engann veginn undir þeim væntingum sem voru gerðar til hans. Barcelona lagði upp með að halda boltanum en Real gáfu enginn færi á sér og héldu frekar svæðum heldur en að pressa Börsunga. Fátt markvert gerðist samt í fyrri hálfleik fyrr en þegar hann var flautaður af þá brugðust fram ólæti á varamannabekkjum liðanna og þeim viðskiptum lauk með að varamarkverði Barcelona var vikið af leikvelli.

Seinni hálfeikur var þó heldur skemmtilegri, þó ekki endilega fyrir fótboltagildið heldur var meiri æsingur í mönnum. Það dróg til tíðinda á 61' mín þegar Pepe braut á dani Alves og var sendur í sturtu, umdeildur dómur en staðreynd engu að síður.

Jose Mourinho var alls ekki sáttur við ákvörðun Þjóðverjans og var sendur upp í stúku í kjölfarið.

Eftir brottvísun Peppe þá héldu Börsungar boltanum nánast allan tímann þar til það loksins bar árángur á 76' mín þegar Ibrahim Afellay, sem var nýkominn inná fyrir Pedro labbaði framhjá Marcelo og sendi góða sendingu inn fyrir á Lionel Messi sem kláraði færið og kom Barcelona í 0-1.

Messi bætti svo við öðru marki sínu á 87' mín þegar hann labbaði gegnum þrjá varnarmenn Real og kláraði færið framhjá iker Casillas og kom Barcelona yfir 0-2. Gríðarlega sterkur sigur hjá Barcelona, en þetta verður erfitt fyrir Real Madrid.




Herbalife