Meistaradeildin: United í úrslit

4.5.2011 | 22.27 | Anton Ingi
Manchester united vann í kvöld flottan sigur á heimavelli gegn Schalke.

Sigur Manchester manna var nokkuð sannfærandi og endaði leikurinn 4-1 fyrir heimamönnum, United mætir Barcelona á Wembley í úrslitaleiknumen þessi lið kepptu einnig árið 2009.

Antonio Valencia skoraði fyrsta mark United og Gibson bætti svo við öðru fljótlega eftir, en hann lagði einnig upp fyrsta markið og átti stórfínan leik.

Það var ekki allt líf úr Þjóðverjunum en jurardo lagaði stöðuna fyrir gestina og staðan orðin 2-1. United bætti þá bara í og kláraði leikinn undir lok seinni hálfleiks með mörkum frá miðjumanninum kná, hinn brasilíski Anderson.




Herbalife