Norðmenn tóku öll stigin á Laugardalsvelli
3.9.2010 | 21.00 | Boltinn
Norðmenn unnu Íslendinga 2-1 á Laugardalsvelli í kvöld í fyrsta leiknum í undankeppni EM. Sigur Norðmanna var langt frá því að teljast sanngjarn en íslenska liðið lék vel í fyrrihálfleik og hafði 1-0 forystu í hálfleik. Íslenska liðið hefði allavega átt að fá annað stigið úr þessum leik. Íslenska liðið byrjaði leikinn með talverðum látum og tóku völdin á vellinum. Liðið komst yfir á 38. mínútu er Heiðar Helguson skoraði mark með góðu hælskoti. Norðmenn jöfnuðu svo leikinn þegar um stundarfjórðungur var liðin var seinnihálfleik og það gerði Brede Hangeland með skalla eftir hornspyrnu. Norðmenn skoruðu svo sigurmark sitt á 75. mínútu og var það að verki Mohammed Abdellaoue. Margt jákvætt í þessum leik þrátt fyrir tap og ungu strákarnir sem komu inn sýndu að þeir vilja vera þarna og þeir leikmenn sem hafa undanfarin ár verið með fasta áskrift á sæti þurfa að hafa sig alla við ef þeir vilja klæðast bláu treyjunni aftur.
Ísland-Noregur 1-2
1-0 Heiðar Helguson (38.)
1-1 Brede Hangeland (59.)
1-2 Mohammed Abdellaoue (75.)