Pepsi-deild kvenna - Valur Íslandsmeistari

5.9.2010 | 00.48 | Anton Ingi

Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld, en hún var mjög viðburðarík. Valsstúlkur tryggðu sér titilinn með 8-1 sigri á Aftureldingu, vegna þess að FH sigraði Breiðablik 3-2 og Stjarnan sigraði Þór/KA með sömu markatölu.

Valur, Þór/KA og Breiðablik voru í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn, en eftir úrslitin í dag er ljóst að Valsstúlkur standa uppi sem Íslandsmeistarar þó tvær umferðir séu eftir.

Úrslit og markaskorarar fengið frá Fótbolti.net:

Grindavík 2-2 Haukar
0-1 Sara Lyons Jordan ('43)
0-2 Megan Snell ('77)
1-2 Shaneka Gordon ('90)
2-2 Sarah McFadden ('91)
Rautt spjald:María Rós Arngrímsdóttir ('94)

Stjarnan 3–2 Þór/KA
0-1 Mateja Zver (´15)
1-1 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir (´37)
2-1 Katie McCoy (´69 víti)
2-2 Mateja Zver (´78, víti)
3-2 Inga Birna Friðjónsdóttir (´88)

KR 1-1 Fylkir:
1-0 Katrín Ásbjörnsdóttir ('22)
1-1 Anna Björg Björnsdóttir ('61)

FH 3-2 Breiðablik:
0-1 Sara Björk Gunnarsdóttir ('14)
1-1 Sigrún Ella Einarsdóttir ('25)
1-2 Jóna Kristín Hauksdóttir ('29)
2-2 Sigríður Guðmundsdóttir ('55, víti)
3-2 Liliana Martins ('61)






Herbalife