Schalke og Real Madrid í undanúrslit

14.4.2011 | 00.51 | Anton Ingi

Tveir leikir voru í kvöld í Meistaradeild Evrópu í 8-liða úrslitum, en lítil spenna var fyrir leiki kvöldsins þar sem Real og Schalke voru nánast búnir að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit.

Schalke tók á móti Evrópumeisturunum í Inter á heimavelli sínum, en Schalke vann fyrri leikinn á Ítalíu 5-2 og voru því með nokkuð örugga forystu. Leikurinn fór nokkuð hægt af stað og var ljóst að Schalke ætlaði nú að verjast.

Ef þetta var nú ekki öruggt fyrir þá var það klárt mál þegar Raul kom þeim Þýsku yfir á 45' mín. Inter ætlaði ekki að gefast upp og strax eftir fimm mínútna leik þá jafnaði Thiago Motta leikinn. Benedikt Hoewedes tryggði svo heimamönnum sigur á 81. mínútu eftir sendingu frá Raul. Lokastaðan 2-1 fyrir Schalke sem lagði því Evrópumeistara síðasta tímabils.

Schalke mætir Man utd í undanúrslitum.

Hinn leikur kvöldsins var leikur Real og Tottenham á White Hart Lane í Lundúnum, eins og með hinn leikinn þá var þessi leikur nokkuð öruggur fyrir Real en þeir unnu fyrri leikinn 4-0 á Bernabeu og því þurfti Tottenham á sínum lang lang besta leik til að eiga möguleika. Staðan var markalaus í hálfleik en Tottenham voru ósáttir út í dómarann en þeir vildu fá tvær vítaspyrnur.

Tottenham hélt áfram að sækja og ætlaði að nýta þessar seinustu mínútur í meistaradeildinni til hins ýtrasta. Real náði síðan að skora á 50' mín eftir hræðileg mistök frá Heurolio Gomez en hann varði skot frá Ronaldo inn.

Real madrid mætir þá erkifjendum sínum í Barca í kvöld.






Herbalife