Úrslitaleikur 1. deildar kvenna fer fram í dag

5.9.2010 | 10.14 | Anton Ingi

Sunnudaginn 5. september leika ÍBV og Þróttur til úrslita í 1. deild kvenna en þessi félög hafa þegar tryggt sér sæti í Pepsi-deild kvenna að ári.  Leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli og hefst kl. 12:30.

Þessi félög urðu efst í sínum riðlum í 1. deild kvenna og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitum.  ÍBV lagði þar Keflavík í tveimur leikjum og Þróttur hafði betur gegn Selfoss í seinni viðureign félaganna eftir að fyrri leiknum hafði lokið með jafntefli.  Félögin tryggðu sér þar með sæti í Pepsi-deild kvenna að ári en eigast nú við í úrslitaleik um sigurlaunin í 1. deild kvenna.






Herbalife