Valitor Bikarinn: Umfjöllun allir leikirnir

26.5.2011 | 23.35 | Anton Ingi

Valitor Bikarinn: Umfjöllun allir leikirnir.

16 leikir fóru fram á tveimur dögum í Bikarkeppni KSÍ. En 11 af þessum leikjum fóru fram 25. Maí en hinir daginn eftir. Hér fyrir neðan getur þú séð umfjöllum um leikina.

FH 3-2 Fylkir (Framlenging)

Bikarmeistarar FH tóku á móti Fylki á Kaplakrikavelli í mikilli rigningu og roki, en menn létu það ekki á sig fá og var fínn hraður leikur spilaður í Hafnarfirðinum.

FH byrjaði leikinn betur og héldu boltanum vel innan liðsins, en jafnframt vörðust Fylkismenn vel og voru Þolinmóðir og skynsamir. Það skilaði sér með marki á 18. mín en þar var að verki Gylfi nokkur Einarsson.

FH ingar létu það ekki á sig fá og uppskáru mjög svipað jöfnunarmark á 25. mínútu en þá skoraði varnarmaðurinn Pétur Viðarsson flott skallamark eftir hornspyrnu Viktors Arnar Guðmundssonar.

Áður en fyrri hálfeik lauk skoruðu Fylkismenn annað mark og komust yfir með marki Alberts Brynjars Ingasonar sem var einn á auðum sjó inn í teig FH og lagði boltann í netið, og staðan 1-2 í hálfleik.

Í seinni hálfleik voru FH nánast allan tímann með boltann en náðu þó ekki að jafna fyrr en á 67. mín en þá skoraði nautið í frammlínunni hjá FH Hannes Þ. Sigurðsson mark að harðfylgi og jafnaði þar með metinn.

Gylfi Einarsson þurfti að fara af velli stuttu eftir þetta vegna meiðsla og hafði það mikið að segja um úrslit leiksins en hann hafði verið frábær fyrir það.

Leikurinn var jafn eftir venjulegan leiktíma og var því blásið til framlengingar.

Eftir aðeins 6. mín í framlenginu skoraði varnarmaðurinn í liði FH Freyr Bjarnason og kom þeim yfir. Ekki var meira skorað í leiknum og FH ingar því komnir áfram í 16 liða úrslit.

Gunnleifur Gunnleifsson var frábær í leiknum og varði nokkrum sinnum vel, spurning hvort hann hafi hrifið Ólaf Jóhannesson sem var á leiknum.

Breiðablik 2-1 Völsungur:

Íslandsmeistarar Breiðabliks tóku á móti 2. deildar lið Völsungs í bikarum í gær, og máttu Blikar prísa sig sæla að hafa komist áfram en Völsungarnir voru sprækir og gáfu ekkert eftir.

Blikar voru mikið betri í fyrri hálfleiknum eða allaveganna byrjun hans og skoruðu 2 mörk á fyrstu 27. mínútunum. Völsungur fengu einnig sín færi og klikkuðu meðal annars vítaspyrnu en Ingvar Þór Kale í marki Blika varði vel.

Völsungur byrjaði seinni hálfleikinn vel og náðu að minnka muninn þegar stundargjórðungur var eftir, lengra komust þeir ekki og Breiðablik því komnir áfram.

Valur 2-1 Víkíngur Ó (Framlenging)

Valur tók á móti nýliðum 1. deildar frá Ólafsvík á Vodafone vellinum.

Valur byrjaði leikinn vel og komust yfirá 12. mín þegar Jón Vilhelm Ákason skoraði mark. Valur hélt boltanum meira í leiknum en Víkingar áttu sín færi og það skilaði sér rétt fyrir lok hálfleiksins þegar Víkingur skoraði úr flottri aukaspyrnu og jafnaði þar með metinn.

Ekkert var skorað síðan í seinni hálfleik og því þurfti að blása til framlengingar en þar voru Valsmenn betri og skoruðu á 115. mín en þar var að verki Haukur Pálsson en fyrr í framlengingunni höfðu Valur klikkar víti. Þar varði markvörður Víkinga vel frá Guðjóni pétri lýðssyni.

Stjarnan 0-3 KR:

Stjarnan fékk KR í heimsókn en liðin áttust einnig við í seinustu umferð Íslandsmótsins en þá lauk leik með 1-1 jafntefli.

Mikið fjör var fyrstu 30. mín og sóttu liðin mikið en þó voru KR meira með boltann meðan Stjörnumenn beittu löngum boltum fram.

Stjörnumenn björguðu á línu og hinum meginn þá varði Hannes í markinu. Eftir þessar 30. mínútur róaðist leikurinn aðeins en Viktor Bjarki náði síðan að pota einu marki inn fyrir hálfleik með fínu skallamarki og staðan 0-1 í hálfleik.

Stjörnumenn ætluðu sér að jafna og fjölguðu í sóknina en það kom í bakið á þeim þegar Dofri skoraði eftir skyndisókn.

Viktor Bjarki kláraði leikinn síðan um miðjan seinni hálfleikinn með skoti fyrir utan teig sem Ingvar Jónsson missti inn og lokatölur á Stjörnuvellinum 0-3.

Aðrir leikir:

Fram 3-1 Berserkir:
Tómas Leifsson 1-0
Guðmundur Magnússon 2-0
Kristján Andersson  2-1
Guðmundur Magnússon 3-1

KA 1-2 Grindavík:
Pospisil 0-1
Pospisil 0-2
Hallgrímur Steinsson 1-2

Hamar 2-0 KFS:

BÍ Bolungarvík 5-1 Reynir S.
Kevin Brown 1-0
Kevin Brown 2-0
Þorsteinn Þorsteinsson 2-1
Birkir Halldór Sverrisson 3-1
Jónmundur Grétarsson 4-1
Colin Marshall 5-1

Kjalnesingar 0-3 ÍBV
Þórarinn Valdimarsson 0-1
Yngvi Borgþórsson  0-2
Ian Jeffs 0-3

Fjölnir 1-0 Selfoss
Viðar Guðjónsson 1-0

ÍR 1-3 Þróttur (Framlenging)
1-0 Karl Brynjar Björnsson
1-1 Sveinbjörn Jónasson
1-2 Sveinbjörn Jónasson
1-3 Hjörvar Hermannson

Haukar 2-0 KF

Njarðvík 0-1 HK
Orri Ómarsson 0-1

Höttur 0-5 Keflavík

KV 0-2 Víkingur R.
Kemar Rofe 0-1
Mareinn Briem 0-2

Þór 5-0 Leiknir:






Herbalife