Þrír varnarmenn sárir eftir að hafa reynt að stöðva sóknarmann - MYNDBAND

8.3.2010 | Gunnar Gunnarsson
Varnarmönnum Den Haag tókst vissulega að stöðva för Georginio Wijnaldum, sóknarmanns Feyenoord, en þrír lágu meiddir eftir. Þeir skullu saman þar sem þeir vissu ekki hvort þeir voru að koma eða fara þgear þeir þeir reyndu að stöðva mótherjann.

Kuszczak: Fer ef ég fæ ekki að vera númer eitt

8.3.2010 | Gunnar Gunnarsson
Tomasz Kuszczak, varamarkvörður Manchester United, segir að hann fari fljótlega frá félaginu fái hann ekki aðalmarkvarðarstöðuna. Ákvörðun aðalmarkvarðarins Edwin van der Sar um að vera enn eitt árið hjá United bætir ekki stöðu Pólverjans.

England úrslit dagsins:

6.3.2010 | Ísak Hallmundarson

3 leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og úrslitin urðu sú að Arsenal lagði Burnley 3:1 en mörk Arsenal gerðu þeir Cesc Fabregas, Theo Walcott og Andrei Arshavin. Manchester United lögðu Wolves 1:0 og mark United gerði Paul Scholes með laglegu skoti. Bolton unnu einnig West Ham 2:1 á útivelli og Portsmouth sigraði Birmingham í bikarnum með 2 mörkum frá Piquinne á meðan Fulham og Tottenham gerðu steindautt 0:0 jafntefli.

Wolves-Man Utd í kvöld- Rooney tæpur

6.3.2010 | Ísak Hallmundarson
Mick McCarthy og félagar í Wolves taka á móti englandsmeisturum United en Wayne Rooney er tæpur fyrir leikinn.

Sir Alex Ferguson þjálfari United er vonsvikinn yfir að Rooney lék allan leikinn fyrir Englendinga gegn Egyptum sl. miðvikudag og er ekki viss um að Rooney spili.

Reina og Maschernao við það að semja við Liverpool

6.3.2010 | Boltinn
Rafa Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool segir að þeir Pepe Reina og Javier Mascherano séu langt komnir með að gera nýjan samning við félagið.   Vitað var að Reina mundi skrifa undir nýjan samning en með Mascherano hefur verið meira fréttir að hann sé að fara til Spánar. En Rafa Benítez hafði þetta að segja.

LA Galaxy vilja fá Donavan í þessum mánuði

6.3.2010 | Boltinn
Svo gæti farið að Bandaríkski landsliðsmaðurinn Landon Donavan þurfi að yfirgefa Everton í þessum mánuði og halda heim til lið sína LA Galaxy.  Leikurinn kom til Everton á lánssamning í janúar en undirbúningstímabilið í Bandaríkjunum er að fara að hefast.  Fréttir herma að forrmaðamenn LA Galaxy vilja sinn mann heim en David Moyes, knattspyrnustjóri Everton heldur í vonina að halda leikmanninum lengur enda hefur hann svo sannarlega sett sitt mark á leik liðsins.

Enski bikarinn um helgina

6.3.2010 | Boltinn
Það er komið að átta liða úrslitum í enska bikarnum og verða tveir leikir í dag og síðan tveir leikir á morgun.  Í dag eigast við Portsmouth og Birmingham og seinna í dag tekur Fulham á móti Tottenham.  Á morgun eigast svo við Chelsea og Stoke og hinsvegar Reading og Aston Villa.

Enska úrvalsdeildin leikir dagsins

6.3.2010 | Boltinn
Þessa helgina er bikarhelgi á Englandi en það er þrátt fyrir það fjórir leikir í ensku úrvalsdeildinni.  Í dag eru þrír leikir á dagskrá og svo einn á morgun.  Á mánudaginn eigast svo Wigan og Liverpool við.   Í dag tekur Arsenal á móti Burnley. West Ham fær Bolton í heimsókn og Wolves tekur á móti Manchester United.  Á morgun eigast svo Everton og Hull við.

Byrjunarlið Íslands gegn Kýpur

3.3.2010 | Boltinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir vináttulandsleikinn við Kýpverja, sem fram fer á Antonis Papadopoulos-leikvanginum í Larnaca á Kýpur í dag klukkan 16:00. Leikurinn er í beinni á Stöð2 Sport og hefst útsending stundarfjórðung fyrr. Ísland spilar leikaðferðina 4-3-3 eða 4-5-1 í dag en hér að neðan má sjá byrjunarliðið. Heiðar Helguson er fyrirliði Íslands í dag.

Heyrir rangstæðan sögunni til?

2.3.2010 | Boltinn
Svo gæti farið að ranstöðureglan heyri sögunni til í knattspyrnunni.  Já ef til vil reka menn upp stór augu við að sjá þessa fyrirsögn en samkvæmt nýjustu fréttum af sjálfum Sepp Blatter, forseta alþjóðlega knattspyrnusambandsins (FIFA) þá er hann þessa dagana að íhuga það að afnema þessa reglu.  Vissulega mundi þetta gjörbreyta leiknum og kannski koma meiri hraði og spenna í hann? 

Real Madrid fyrst til að skila 400 miljónum evra í tekjur

2.3.2010 | Boltinn
Real Madrid er fyrsta íþróttalið í heiminum til að skila 400 milljónum evra í tekjur og situr áfram á toppi peningadeildar Deloitte. Real Madrid er áfram tekjuhæsta lið heims fimmta árið í röð, samkvæmt skýrslu Deloitte um tekjuhæstu lið heims sem er nú gefin út í  þrettánda sinn.  Um er að ræða fjárhagsupplýsingar vegna keppnistímabilsins 2008 til 2009. Real Madrid er jafnframt fyrsta lið í heiminum,  til að þéna meira en 400 milljónum evra á einu ári. Auka þeir tekjur sínar um meira en 10% milli ára, sem rekja má til aukinna tekna af sjónvarpsréttindum, þrátt fyrir frekar dapurt tímabil á knattspyrnuvellinum.

Ragnar Sig til Blackburn?

28.2.2010 | Gunnar Gunnarsson
Blackburn Rovers er sagt fylgjast náið með framgangi íslenska landsliðsmannsins Ragnars Sigurðssonar, sem leikur með Gautaborg í Svíþjóð.

Yngri leikmenn United eiga ekki að fara í viðtöl

25.2.2010 | Gunnar Gunnarsson
Sir Alex Ferguson hefur bannað leikmönnum U-18 ára liðs Manchester United að veita MUTV sjónvarpsstöðinni, sem félagið rekur, viðtöl. Þetta er vegna slaks gengis liðsins að undanförnu.

Yngri leikmenn United skulu spila í svörtum skóm

24.2.2010 | Gunnar Gunnarsson
Sir Alex Ferguson hefur bannað yngri leikmönnum Manchester United að spila í lituðum skóm. Ferguson vill að leikmennirnir einbeiti sér að því að verða góðir fótboltamenn frekar en að vekja á sér athygli fyrir litadýrð á knattspyrnuvellinum.

Schuster: Real Madrid án Ronaldo er eins og svefnpilla

24.2.2010 | Boltinn
Bernd Schuster fyrrum þjálfari Real Madrid segir að liðið án Cristiano Ronaldo sé eins og svefnpilla - hafi mjög svæfandi áhrif á hann.   Hann segir einnig í viðtali við Goal.com að hann hafði viljað fá David Villa til félagsins er hann var við stjórnvöl en nokkrir áhrifa leikmenn höfðu komið því þannig í kring að svo yrði ekki - meðal þeirra var Raul sjálfur.