Aguero vill fara frá Atletico Madrid

25.5.2011 | 14.52 | Anton Ingi
Argentínumaðurinn Sergio Aguero segir við fjölmiðla í dag að hann vilji burt frá Atletico Madrid.

Aguero er mjög eftirsóttur víðsvegar um Evrópu og er verðmiðinn á honum talinn vera 40 milljónir punda.

Agüero hefur skorað 74 mörk í spænsku úrvalsdeildinni með Atletico Madrid á fimm árum og vakið mikla athygli. Spænsku stórveldin Real Madrid og Barcelona vilja bæði fá hann í sínar raðir, en England virðist einnig vera góður kostur fyrir Argentínumannin en lið eins og Chelsea eru með hann á óskalista sínum.




Herbalife