Annað tap íslensku strákanna okkar í Danmörku

15.6.2011 | 12.35 | Boltinn

Litlu strákarnir okkar í U21 landslið karla byrja ekki vel á Evrópumótinu í Danmörku og töpuðu strákarnir aftur sínum öðrum leik gegn Sviss í gær 2-0.

Þjálfari liðsins Eyjólfur Sverrisson hafði gert þrjár breytingar á liðinu frá því í fyrsta leiknum en Aron Einar Gunnarsson var í leikbanni, Jóhann Berg Guðmundsson var meiddur og Arnór Smárason settist í varamannabekkinn.  

Fabian Frei skoraði strax á fyrstu mínútu leiksins fyrir Sviss og sló það íslenska liðið nánast í rot því strákarnir náðu sér ekki á strik og að spila sinn bolta. Það var síðan á fertugustu mínútu sem Svisslendingar bættu við örðu marki en það var Innocent Emeghara öðru marki. Á 65. mínútu skoraði Rúrik Gíslason mark en var réttilega dæmdur rangstæður og meira var ekki skorað í leiknum.

Þrátt fyrir tapið er ekki er öll von úti því Danir sigruðu Hvít-Rússa í gær. Íslenska liðið getur ennþá tölfræðilega séð komist upp úr riðlinum og tryggt sér sæti á Ólympíuleikana í London á næsta ári með því að vinna leikinn gegn Dönum með miklum markamun og Sviss vinnur Hvít-Rússa.






Herbalife