BÍ/Bolungarvík og KR í 8-liða úrslit Valitorsbikarsins
23.6.2011 | 23.30 | Boltinn
Það gerðist það ótrúlega í 16-liða úrslitum í Valitor bikar karla að Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í BÍ/Bolungarvík unnu Íslandsmeistara Breiðabliks 4-1. BÍ/Bolungarvík og KR tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni karla.
Guðjón Þórðarson og lærisveinar lögðu Breiðabliks, 4-1, í framlengdum leik en jafnt var eftir venjulegan leiktíma 1-1.
Á KR-velli lögðu KRingar bikarmeistara FH, 2-0, með mörkum frá Gunnari Erni Jónssyni og Grétari Sigfinni Sigurðarsyni.