Gerard Houllier á leið á Villa Park?

6.9.2010 | 11.42 | Anton Ingi

Frakkinn Gerard Houllier er sagður vera taka við Aston Villa á næstu tveimur sólarhringum, en Aston Villa er enn án þjálfara eftir að Martin O'Neal, fyrrverandi þjálfari liðsins sagði óvænt upp störfum rétt fyrir tímabilið.

Gerard Houllier mun væntanlega verða kynntur til sögunnar á Villa Park á næstu tveimur sólarhringum, en þetta fullyrðir Sky Sports. Randy Lerner, stjórnarmaður Aston Villa, á að hafa átt í samræðum við Houllier yfir helgi og hann á að vera á leið á Villa Park.

Þessi 62 ára gamli þjálfari hefur m.a. unnið það sér til frægðar að hafa stýrt Liverpool og Lyon með góðum árangri.






Herbalife