Ísland U21 árs tapaði fyrsta leiknum í EM U21 í Danmörku

12.6.2011 | 10.15 | Boltinn
Ungu strákarnir okkar og lið Danmerkur töpuðu bæði sínum fyrsta leik á EM U21 árs landsliða sen byrjaði í Árósum í gær.

Leikur Íslendinga og Hvít-Rússa var frekar rólegur framan af en lið Íslands leit þó betur út í fyrri hálfleik, voru meira með boltann og greinilegt að leikáætlun Hvít Rússa var að liggja til baka með þétta vörn og sækja á 3-4 leikmönnum í hröðum sóknum.

Í seinni hálfleik náðu íslensku strákarnir að fá nokkur góð færi án þess að koma boltanum í netið en Kolbeinn Sigþórsson fékk 2 mjög góð færi án þess að ná að skora. Hvít-Rússar fengu síðan dæmt víti eftir að Aron Einars braut á sóknarmanni þeirra inn fyrir vítateig og dómari leiksins sýndi Aroni Einari rautt spjald að launum.

Það var eins og Ísland hafi misst trúna eftir markið því íslenska liðið var ekki líklegt til að jafna leikinn þrátt fyrir að hafa reynt að sækja áfram og endaði það þannig að Hvít-Rússar settu annað markið þegar skammt var eftir af leiknum. Lokatölur leiksins því í þessu fyrsta stórmóti U21 árs liðs karla 0-2 og verður erfitt að vinna bæði Sviss og Damörk til þessa að komast upp úr riðlinum og tryggja sér sæti á Ólýmpíuleikunum í London á næsta ári.

Hinn leikurinn í riðlinum fór fram strax að loknum íslenska leiknum og þar mættust lið Danmerkur og Sviss. Sá leikur var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu og eru þau lið mjög áþekk. Sviss komst yfir í seinni hálfleik með marki frá svissneska undrabarninu Xherdan Shaqiri. Það var markvörður Svisslendinga sem var maður leiksins og kom í veg fyrir að Danir næðu að jafna leikinn.

Íslendingar og Danir sitja því á botninum með 0 stig eftir fyrsta leikinn og næsti leikur er á þriðjudaginn gegn Sviss.





Herbalife