Landsliðið komið til Köben

5.9.2010 | 07.51 | Anton Ingi

Íslenska landsliðið í knattspyrnu er mætt til Kaupmannahafnar þar sem liðið mun etja kappi við Danmörku á Parken á þriðjudag. Liðið tafðist á Reykjanesbrautinni í dag vegna umferðaslys sem varð á veginum og var óvíst hvort liðið myndi ná vélinni klukkan fjögur í gærdag, laugardag.

Liðið kom á hótelið svo í gærkvöldi og mun æfa tvisvar sinnum í dag og svo einu sinni á mánudag, en þá fá þeir að æfa á sjálfum Parken þar sem leikurinn verður.

Birkir Már Sævarsson og Baldur Sigurðsson koma inn í hópinn fyrir Grétar Rafn Steinsson og Brynjar Björn Gunnarsson sem báðir eru meiddir.






Herbalife