Pepsi-deildin: FH, Valur, KR, Grindavík, Fylkir og ÍBV með sigra

31.5.2011 | 22.59 | Anton Ingi
Heil umferð fór fram í gær og dag í Pepsi-deild karla. FH, Valur, KR, Grindavík, Fylkir og ÍBV unnu góða sigra. Umfjöllun um leikina má sjá í meira.

FH 3-0 Stjarnan:

FH fengu garðbæingana úr Stjörnunni í heimsókn á Kaplakrikavöll í kvöld.

Lítil spenna var í leiknum og héldu FH boltanum mjög vel innan liðsins og sáu Stjörnumenn aldrei til sólar þótt þeir hefðu átt tvö dauðafri sem Gunnleifur varði vel í markinu.

Matthías Villhjálmsson var frábær í kvöld og skoraði fyrsta mark leiksins með skoti efst í markhornið. Eftir markið sóttu Stjörnumenn aðeins í sig veðrið og gerðu tilkall til tveggja vítaspyrna en dómarinn var ekki á sama máli.

Hannes Þ. Sigurðsson skoraði síðan annað mark FH en hann hefur verið frábær í seinustu leikjum, staðan orðin 2-0.

FH-ingar kláruðu síðan leikinn í upphafi seinni hálfleiks með marki Matthíasar úr vítaspyrnu, en stjörnumenn voru alls ekki sáttir með þann dóm.
Lokatölur 3-0 og FH aað komast í gang eftir erfiða byrjun.

Fylkir 2-1 Keflavík:

Fylkismenn unnu í kvöld dramatískan sigur á Keflvíkingum, en þeir skoruðu loka markið á 90' mín.

Keflvíkingar fengu draumabyrjun en þeir skoruðu fyrsta mark leiksins á 3' mín en þar var að verki Jóhann Birnir.

Fylkir vann sig síðan hægt og rólega inn í leikinn og sköpuðu sér nokkur færi áður en að Ingimundur Níels Óskarsson skoraði jöfnunarmark Fylkismanna.

Jafnt var síðan í leiknum og allt benti til jafteflis þangað til Ingimundur Níels bætti við öðru marki sínu á 90' mín og tryggði Fylkismönnum mikilvægan sigur.

ÍBV 2-0 Víkingur:

ÍBV unnu í kvöld sannfærandi sigur á Víkingum 2-0 en sigurinn hefði aðveldlega orðið mikið stærri.

Eyjamenn tóku víkinga í sannkallaða kennslustund en þeir áttu þennan leik og sást vel hvaða lið eru nýliðar.

Víkingar áttu þrátt fyrir allt fyrsta færi leiksins en gerðu sér ekki not úr því og þá spýttu Eyjamenn í lófana og hófu stórsókn sína sem endaði með fyrsta marki leiksins sem var skorað á 15' mín af Ian Jeffs og staðan 1-0.

Tryggvi Guðmundsson skoraði annað mark leiksins en hann lét ekki grímuna trufla sig í kvöld og nálgast óðum markametið í deildinni.

Ekki var meira skoraði þótt það hefði auðveldlega verið hægt en Eyjamenn misnotuðu mörg færi.

Fram 1-2 KR:

Neðsta lið deildarinnar Fram tók á móti KR í gærkvöld en þessi lið eru á sitthvorum enda deildarinnar.

Leikurinn var rólegur í byrjun en Kjartan Henry náði þó að skora fyrsta mark KR inga í leiknum á 21' mín. Sú forysta var ekki lengi en Arnar Gunnlaugsson skoraði jöfnunarmark Framarar 5' mín síðar en hann er sá eini sem er búinn að skora fyrir Fram í deildinni.

Framarar ætluðu ekki að láta vaða yfir sig í kvöld og voru síst verri en KR ingarnir en það hjálpaði þeim lítið sem ekkert því það var varnartröllið Grétar Sigfinnur sem skoraði sigurmark KR- inga á 78' mín og tryggði þar með fínan sigur.

Valur 2-0 Breiðablik:

Valur vann í gærkvöld mikilvægan sigur í toppbaráttunni gegn Breiðablik.

Matthías Guðmundsson kom Valsmönnum yfir á 11' mín með sínu fyrsta marki á tímabilinu, en rangstöðu fnykur var á markinu en dómari leiksins dæmdi ekki neitt.

Vörn Valsmanna var mjög góð og komut Blikarnir ekki neitt áleiðis fram á við fyrr en í byrjun seinni hálfleiks þegar Kristinn Steindórsson klikkaði dauðafæri en skot hans fór framhjá.

Hörður Sveinsson skoraði sitt fyrsta mark tímabilsins líkt og Matthías og kom Valsmönnum tveimur mörkum yfir og tryggði þar mikilvægan sigur.

Grindavík 4-1 Þór:

Grindvíkingar fengu nýliða Þórs í heimsókn í gærkvöld en bæði lið hafa ekki gengið vel það sem af er tímabili.

Sigur Grindvíkinga var aldrei spurning og kom fyrsta mark leiksins á 1' mín en þar var að verki Robbie Winters.

Grindvíkingar skoruðu síðan annað mark leiksins á 9' mín en þar varð verki Frakkinn Si Salem sem skoraði með fínni vippu.

Grindvíkingar skoruðu síðan tvö mörk áður en þórsarar minnkuðu muninn undir lokinn en lokatölur 4-1, mikilvægur sigur Grindavík staðreynd.




Herbalife