Teitur framlengir við Vancouver Whitecaps

3.9.2010 | 14.19 | Anton Ingi

Teitur Þórðarson hefur framlengt samning sinn við Vancouver Whitecaps um eitt ár. Teitur tók við liðinu árið 2007 og hefur gert frábæra hluti, en á fyrsta ári gerði hann liðið að meisturum.

Vancouver hefur verið tekinn inn í MSL-deildina, en hún er atvinnumannadeild og það er ljóst að Teitur á strembið verkefni framundan, en þegar þetta er skrifað er liðið í efsta sæti í USL-1 riðlinum.






Herbalife