Upphitun Áfram Íslands klúbbsins í Kaupmannahöfn
6.9.2010 | 08.56 | Boltinn
Áfram Ísland stuðningmannaklúbburinn er búinn að skipuleggja upphitun fyrir Danaleikinn.
Leikurinn verður þriðjudaginn 7. september á Parken og byrjar kl 20:15 að staðartíma.
* Upphitunin byrjar kl. 14:00 á O´learys sportbar sem er staðsettur á aðalbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn.
* Áfram Ísland klúbburinn mun bjóða uppá íslenska stuðtónlist.
* Tilboð á veitingum.
* Allir saman á völlinn frá brautarstöð.
* Verðum að sjálfsögðu með Áfram Ísland stuðningsmanna vörurnar svo allir geti dressað sig upp í fánalitunum fyrir leikinn.
* Heimasíða staðarins er: http://www.olearys.dk/
Áfram Ísland!