Úrslitaleikur meistaradeildarinnar í kvöld
28.5.2011 | 08.42 | Anton Ingi
Manchester United og Barcelona munu leiða saman hesta sína á Wembley í kvöld þegar spilað verður í úrslitum meistaradeildarinnar. Leikurinn hefst 18.45 og verður sýndur í beinni útsendingu á stöð 2 sport.
Þessi lið mættust einnnig árið 2009 og þá sigraði Barcelona 2-0.
Man. Utd. sigraði Chelsea í undanúrslitum en Barcelona sló út Real Madrid.