Valitor bikarinn - Stjarnan tekur á móti bikarmeisturum Vals og KR eða FH fá Keflavík í heimsókn

22.6.2011 | 15.33 | Boltinn
Í dag var dregið í 8 liða úrslitum Valitor bikar karla og kvenna og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ.  Hjá konunum mætast m.a. félögin sem léku til úrslita á síðasta ári, Stjarnan og Valur.

Leikirnir hjá konunum í 8 liða úrsltitum eru:

• Fylkir - FH
• Stjarnan - Valur
• KR - Grindavík
• ÍBV - Afturelding

Hjá körlunum eru tveimur leikjum enn ólokið í 16 liða úrslitum og fara þeir fram á morgun, fimmtudag.  KR og FH mætast í Vesturbænum og BÍ/Bolungarvík og Breiðablik leika á Ísafirði.

Leikirnir hjá körlunum eru:

• BÍ/Bolungarvík eða Breiðablik - Þróttur R.
• Þór - Grindavík
• Fjölnir - ÍBV
• KR eða FH - Keflavík




Herbalife