KR-ingar ekki sáttir með að Erlendur dæmi í Eyjum

9.9.2010 | Anton Ingi
KR-ingar eru ekki allir sáttir með störf Erlends Eríkssonar, dómara, að undanföru. Erlendur dæmdi tvö víti í öruggum 4-0 sigri FH á KR í úrslitum VISA-bikarsins, en KR-ingar voru mjög ósátir við þann dóm þótt flestir aðrir, FH-ingar og hlutlausir, hafi sagt að þetta hafi verið víti bæði tvö.

Guðjón Þórðarson að taka við KA?

8.9.2010 | Anton Ingi
Fréttastofa Stöðvar 2 sagði nú frá í kvöldfréttum sínum að fjárfestingarhópur sem eru góðir stuðningmenn felagsins vilji fá Guðjón Þórðarson sem þjálfara liðsins. Knattspyrnudeildin hefur þrátt fyrir það ekki tekið ákvörðun í málinu.

U21 ára liðið í B-styrkleikaflokki - Dregið á föstudag

8.9.2010 | Boltinn
UEFA tilkynnti í dag hvernig raðað er í styrkleikaflokka þegar dregið verður í umspilinu fyrir úrslitakeppni Evrópumóts U21 ára landsliða hjá U21 karla.  Dregið verður á föstudaginn í Herning í Danmörku og hefst drátturinn kl. 10:30 á okkar tíma.

Pepsi-deildin: Fimm leikir færðir fram um hálftíma á sunnudaginn

8.9.2010 | Boltinn
Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að færa þá fimm leiki sem eru í Pepsi-deild karla nk. sunnudag fram um 30 mínútur. Er þetta gert vegna birtuskilyrða. Eftirfarandi leikir færast því og verða kl. 17.30:

Byrjunarlið Íslands gegn Dönum í undankeppni EM 2012

7.9.2010 | Boltinn
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt gegn Dönum í undankeppni EM 2012, en íslenska liðið mætir því danska á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld.  Tvær breytingar eru gerðar á liðinu frá því í leiknum gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli á föstudag.  Birkir Már Sævarsson kemur inn í hægri bakvörðinn í stað Grétars Rafns Steinssonar, sem meiddist gegn Noregi og er ekki með í kvöld.  Þá kemur Rúrik Gíslason á hægri kantinn og Gylfi Sigurðsson er færður í sóknartengiliðinn í stað Veigars Páls Sigurðssonar, sem tekur sæti á bekknum.

U21 karla - Byrjunarliðið er mætir Tékkum kl. 15:00

7.9.2010 | Boltinn
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Tékkum í dag kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Leikurinn er síðasti leikur liðsins í undankeppni fyrir EM 2011.  Byrjunarliðið er þannig skipað:

Ísland - Danmörk í kvöld - beint á Stöð2 Sport

7.9.2010 | Boltinn
Íslenska landsliðið leikur sinn annan leik í undankeppni EM 2012 er liðið sækir Dani heim á Parken.  Íslenska liðið tapaði fyrir Norðmönnum hér heima á föstudaginn 2-1 og voru að marga mati mikil batamerki á liðinu frá síðustu leikjum.  Íslands hefur spilað 20 leiki við Dani og tapað 16 og gert fjögur jafntefli.  Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:15 og er í beinni á Stöð2 Sport.

U-21 árs leikur við Tékka í dag - beint á Stöð2 Sport

7.9.2010 | Boltinn
Undir 21 árs lið Íslands leikur við Tékka í lokaleik sínum í undankeppni EM í dag og hefst leikurinn klukkan 15:00. Hann verður í beinni á Stöð2 Sport. Strákarnir í U21 eiga ennþá möguleika á því að tryggja sér sæti í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2011 sem fram fer í Danmörku.  Tveggja marka sigur á Tékkum tryggir þeim efsta sæti riðilsins og jafntefli gerir það að verkum að þeir verða ein af fjórum þjóðum með bestan árangur í öðru sæti.  Ef íslenska liðið tapar þarf það að treysta á hagstæð úrslit leikja í öðrum riðlum en allir leikirnir eru leiknir á sama tíma.

Upphitun Áfram Íslands klúbbsins í Kaupmannahöfn

6.9.2010 | Boltinn
Áfram Ísland stuðningmannaklúbburinn er búinn að skipuleggja upphitun fyrir Danaleikinn. Leikurinn verður þriðjudaginn 7. september á Parken og byrjar kl 20:15 að staðartíma.

ÍBV meistari í 1. deild kvenna

5.9.2010 | Anton Ingi
ÍBV varð í dag meistari í fyrstu deild kvenna eftir að liðið vann Þrótt 3-1 í leik um fyrsta sætið, en leikurinn fór fram í Þorlákshöfn. Leikurinn var mjög jafn og skemmtilegur.

Úrslitaleikur 1. deildar kvenna fer fram í dag

5.9.2010 | Anton Ingi
Sunnudaginn 5. september leika ÍBV og Þróttur til úrslita í 1. deild kvenna en þessi félög hafa þegar tryggt sér sæti í Pepsi-deild kvenna að ári.  Leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli og hefst kl. 12:30.

Pepsi-deild kvenna - Valur Íslandsmeistari

5.9.2010 | Anton Ingi
Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld, en hún var mjög viðburðarík. Valsstúlkur tryggðu sér titilinn með 8-1 sigri á Aftureldingu, vegna þess að FH sigraði Breiðablik 3-2 og Stjarnan sigraði Þór/KA með sömu markatölu.