Guðjón Þórðarson að taka við KA?
8.9.2010 | Anton Ingi
Fréttastofa Stöðvar 2 sagði nú frá í kvöldfréttum sínum að fjárfestingarhópur sem eru góðir stuðningmenn felagsins vilji fá Guðjón Þórðarson sem þjálfara liðsins. Knattspyrnudeildin hefur þrátt fyrir það ekki tekið ákvörðun í málinu.
Fréttastofa Stöðvar 2 náði sambandi við Bjarna Áskelsson, formann knattspyrnudeildar KA, en hann vildi ekki játa né neita þessum fréttum og segir að þetta mál eins og annað verði rætt á stjórnafundi á föstudag.
Dean Martin hefur þjálfað liðið undanfarin ár, en liðið er um miðja deild og hefur ekki staðið undir væntingum þetta tímabilið.