Pepsideildin: 3 leikir í kvöld
15.5.2011 | Anton Ingi
3 leikir eru á dagskrá í Pepsi deildinni í kvöld. Í Eyjum mætast ÍBV og Breiðablik en bæði lið unnu sína leiki í síðustu umferð og koma því væntanlega með mikið sjálfstraust í leikina.
Í Laugardalnum kemur Stjarnan í heimsókn til Frammara. Stjarnan vann sinn síðasta leik á meðan Fram gerði markalaust jafntefli og hafa því ekki enn unnuið leik.
Fylkir og Valur mætast í Árbænum en Valur hefur farið vel á stað meðan Fylkis mönnum hefur gengið brösulega með leik af öllu tagi, tap, sigur og jafntefli. Valur tapaði sínum leik gegn ÍBV í síðustu umferð.
Pepsi-deild karla:
16:00 ÍBV - Breiðablik (Hásteinsvöllur)
19:15 Fram - Stjarnan (Laugardalsvöllur)
19:15 Fylkir - Valur (Fylkisvöllur)