Pepsideildin: FH tók Grindavík í kennslustund

6.7.2011 | Boltinn
FH ingar sýndu sitt gamla spil þegar Grindavík komu í heimsókn í Kaplakrika í kvöld. Leikurinn var vel leikinn af FH ingum með gamla manninn Bjarka Gunnlaugsson í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og hann var besti maðurinn á vellinum. FH sigraði Grindavík 7-2.

Valsmenn á 100 ára afmælisárinu eru þéttir fyrir og tylltu sér í fyrsta sætið í Pepsideildinni þegar þeir unnu Þór á Akureyri 3-0. KR á leik til góða gegn ÍBV sem hefur verið frestaður.

Stjarnan vann Fylki á heimavelli 4-1, Breiðablik gerði jafntefli 2-2 við Andra Marteinsson og hans menn í Víking í Víkinni og lánlausir Framarar töpuðu enn einum leiknum og í þetta skiptið gegn Keflavík 1-0.