Pepsi-deildin: Fimm leikir færðir fram um hálftíma á sunnudaginn

8.9.2010 | Boltinn
Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að færa þá fimm leiki sem eru í Pepsi-deild karla nk. sunnudag fram um 30 mínútur. Er þetta gert vegna birtuskilyrða. Eftirfarandi leikir færast því og verða kl. 17.30:

sun. 12. sep. 10 17:30 Valur - Stjarnan       Vodafonevöllurinn     
sun. 12. sep. 10 17:30 Breiðablik - Fylkir    Kópavogsvöllur     
sun. 12. sep. 10 17:30 ÍBV - KR                    Hásteinsvöllur     
sun. 12. sep. 10 17:30 FH - Selfoss            Kaplakrikavöllur     
sun. 12. sep. 10 17:30 Grindavík - Haukar Grindavíkurvöllur   

19. umferð Pepsi-deildar karla lýkur svo mánudaginn 13. september kl. 20.00 þegar Fram og Keflavík eigast við á Laugardalsvelli.