Pepsi-deildin: Fylkir lagði Val - Stjarnan með ótrúlega endurkomu

15.5.2011 | Anton Ingi
Þrír leikir fóru fram í Pepsi deildinni í kvöld en það voru leikir Fylkir - Valur, Fram - Stjarnan og ÍBV - Breiðablik.

Fylkir - Valur:


Fylkismennn fengu Val í heimsókn í Árbæinn en Valur hefur byrjað mótið vel á 100. ára afmælisári sínu.

Leikurinn byrjaði ekki vel og var mikið um miðjumoð fyrstu 20. mín og náðu liðin ekki að halda boltanum innan liðsins.

En á 21. mín dró til tíðinda þegar Fylkismenn skoruðu mark en Þórir Hannesson skoraði mark Fylkismanna með skalla eftir hornspyrnu.

Eftir markið gekk Fylkismönnum betur að halda boltanum og sköpuðu sér nokkur færi en ekkert kom útúr þeim. Valsmenn skoruðu síðan mark á 41. mín en það var dæmt af vegna rangstöðu.

Valsmenn byrjuðu seinni hálfleikinn betur en fyrsta færið áttu Valsmenn, nánar tiltekið Atli sveinn Þórarinsson en hann átti skalla rétt framhjá. Stuttu eftir það áttu Valsmenn annað marktækifæri en þá kaut Skagamaðurinn Jón Vilhelm Ákason í stöng og út.

Valsmenn gáfu meira í sóknina en fengu það í bakið á 69. mín þegar Fylkismenn bættu við öðru marki en þar var að verki Albert Brynjar en hann skoraði eftir frákast.

Þetta mark hægði á leiknum allverulega en Fylkismenn bökkuðu neðar á völlin meðan Valsmenn spiluðu boltanum á milli sín.

Valsmenn minnkuðu muninn undir lokinn þegar Jonas Tór Næs færeyjingurinn minnkaði muninn, en lengra komust þeir ekki og Fylkismenn tryggðu sér þar með flott 3. stig.

Fram - Stjarnan:

Frammarar tóku á móti Stjörnumönnum á Laugardalsvelli í kvöld.

Leikurinn byrjaði rólega fyrstu mínúturnar en síðan strax á 10' mín skoruðu Frammarar fyrsta mark tímabilsins hjá þeim en þar var að verki gamli maðurinn Arnar Gunnlaugsson sem skoraði eftir sendingu markvarðar Frammara Ögmundar en hann þrumaði boltanum fram beint á Arnar.

Stjörnumenn voru ekki lengi að jafna því strax 4' mín seinna skoraði Halldór Orri Björnsson sem skoraði eftir fínt spil Stjörnumanna.

Leikurinn var mjög fjörugur eftir þetta en á 25' mín vr dæm víti á Stjörnumenn en þá braut Jóhann Laxdal á Ívari Björnssyni inní teig, klárt víti. Arnar Gunnlaugsson steig á punktinn og skoraði mjög örugglega og kom Frömmurum aftur yfir.

Áður en að fyrri hálfleik lauk var Arnar Gunnlugsson tekinn útaf en samkvæmt okkar heimildum var en meiddur, en það átti eftir að segja mikið en staðan í hálfleiknum 2-1 fyrir Fram.

Eins og sá fyrri þá byrjaði seinni hálfleikurinn rólega en það var á 59' mín þegar hlutirnir fóru að gerast en þá klikkaði Ívar Björnsson dauðafæri.

Halldór Orri skoraði síðan jöfnunarmark Stjörnunnar stuttu eftir og jafnaði metinn. Eftir markið efldust Stjarnan til muna og klikkaði Garðar Jóhannsson dauðafæri þremur mínútum eftir jöfnunarmarkið.

Efti markið skoruðu Stjörnumenn síðan þrjú mörk og tryggðu sér þar með öflugan sigur og fylgdu þar með eftir góðum sigri á þór í seinustu umferð en lokatölur urðu 2-5 fyrir Stjörnunni.

ÍBV - Breiðablik:

Leikurinn fór rólega af stað, Breiðablik voru þó aðeins beitar sóknarlega séð. Þeir fengu tvö góð færi, fyrst var það Kristinn Steindórsson sem átti skot yfir markið. Seinna færi varð það aftur Kristinn sem átti hann skot fyrir utan teig Eyjamanna en boltinn hafnaði í þverslánni. Eyjamenn fengu ekkert nema hálf færi en ekkert af alvöru.

Stuttu eftir þetta skoruðu Blikar mark en þar var að verki Guðmundur Kristjánsson ftir sendingu Kristins Steindórssonar og staðan 0-1, fátt markvert geriðst eftir markið og staðan því 0-1 í hálfleik.

Eyjamenn gáfust ekki upp og náðu jöfnunarmarki á 59. mín en þá missti Elfar Freyr Helgason af boltanum og Þórarinn Valdimarsson nýtti sér það og skoraði mark, staðan 1-1.

Liðin skiptust síðan á að sækja en Viktor Unnar Illugason, sem kom inná í seinni hálfleik komst næst því að skora en hann skaut í stöng á lokamínútum leiksins. Lokatölur 1-1 úrslit sem bæði lið geta sætt sig við.