Pepsi-deildin: úrslit kvöldsins

23.5.2011 | Anton Ingi
Víkingur R. 0 - 0 Grindavík

Grindvíkingar komu í heimsókn í Víkina. Leikurinn var bragðdaufur og ekki mikið fyrir augað. Andri Marteinsson, þjálfari Víkings, lýsti leiknum örugglega best í viðtali við stöð2sport þegar hann sagði ,,það ættu allir að fá endurgreitt sem borguðu sig inn hér í kvöld". Hættulegasta færi leiksins fékk Paul McShane þegar hann var að sleppa í gegn en skaut framhjá. Steindautt jafntefli í Víkinni staðreynd.

Valur 1 - 0 Fram
1-0 Guðjón Pétur Lýðsson ('86)

Annar tíðindalítill leikur fór fram á Vodafone vellinum í kvöld. Frömmurum hefur ekki gengið vel uppá síðkastið og er einungis með 1 stig eftir 5 umferðir og bara búnir að skora 2 mörk, en bæði þeirra komu fá Arnari Gunnlaugssyni sem var meiddur í kvöld. Lítið var um færi og nánast ekkert í fyrrihálfleik. Í seinnihálfeik vaknaði þó aðeins yfir leiknum og síðustu 15-20 mínútunar voru Valsmenn með yfirhöndina og sóttu stíft á mark frammara. Það var svo á 86 mínútu sem Guðjón Pétur Lýðsson skoraði en Ingólfur Sigurðsson, sem er búinn að vera mikið í umræðunni lagði markið upp. Loka tölur 1-0 og Frammarar enn á botninum með 1 stig.

Keflavík 0-2 ÍBV:
0-1 Tryggvi Guðmundsson ('1)
0-2 Andri Ólafsson ('9)

ÍBV kom í heimsókn til Keflavíkur í kvöld. Mikill vindur var og byrjuðu Eyjamenn að spila með vindi. Eyjapeyjar byrjuðu af miklum krafti og eftir 10 mínútur var staðan orðin 2-0. Tryggvi Guðmundsson skoraði fyrsta markið eftir 50 sekúndur og Andri Ólafsson skoraði seinna markið með skoti utan af velli. Leikurinn róaðist eftir þetta en á 43.mínútu þurfti Tryggvi Guðmundsson að yfirgefa völlinn í sjúkrabifreið eftir að hafa lent í samstuði við Harald Frey. Staðan var 2-0 í hálfleik. Á 68.mínútu kom upp mikið vafaatriði þegar Andri Steinn Birgisson skaut á mark ÍBV og boltinn hafnaði í stönginni og rann ef marklínunni. Keflvíkingar vildu meina að boltinn hafi hafnað innfyrir línuna en dómarinn dæmdi ekki mark. Af sjónvarpsupptökum að dæma virtist boltinn vera inni en þó var erfitt að sjá það. Leiknum lauk með 2-0 sigri gestana.

Stjarnan 1- 1 KR
1-0 Jesper Jensen ('50)
1-1 Kjartan Henry Finnbogason ('68)
Rautt spjald: Tryggvi Sveinn Bjarnason, Stjarnan ('62)

Stjarnan og KR mættust á gervigrasvellinum í Garðabæ. Lítið var um færi í fyrrihálfleik en baráttan var þó til staðar. Bæði lið fengu sitthvort gott færi í fyrri hálfleik til að skora en það tókst ekki og staðan í hálfleik 0-0. Stjörnu menn komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og uppskáru eftir því. Jesper Jensen kom stjörnunni yfir á 50 mínútu með hörku skoti fyrir utan teig. Mikil barátta var í leiknum og gerði Tryggvi Bjarnason sig sekann um slæm mistök á 62 mínútu. Þá var hann með boltann á miðjunni en misti hann boltann og langt frá sér og fór í hörkutæklingu um 50/50 bolta og fékk réttilega að líta rauðaspjaldið. KR-ingar gengu á lægið og 6 mínútum síðar skoraði Kjartan Henry og jafnaði metin. 1-1 reyndist vera lokastaða leiksins.

Breiðablik 3 - 1 Fylkir:
1-0 Kristinn Steindórsson (13)
2-0 Kristinn Steindórsson (18)
2-1 Þórir Hannesson (32)
3-1 Kristinn Steindórsson (víti 71)
Rautt spjald: Valur Fannar Gíslason, Fylkir ('64), Fjalar Þorgeirsson, Fylkir ('68)

Skemmtilegasti leikur kvöldsins fór fram í kópavogi þegar Breiðablik og Fylkir mættust. Eftir 13 mínútur skoraði Kristinn Steindórsson mark fyrir Blika og 5 mínútum síðar var hann aftur á ferðinni þegar hann skoraði flott mark. Hann lék þá á varnarmann Fylkis og kláraði færið vel í fjærhornið. Þórir Hannesson minkaði svo munin fyrir hálfleik og staðan 2-1 í hálfleik. Á 64.mínutu fékk Valur Fannar sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrri brot á miðjum velli. 4 mínútum síðar fékk svo Fjalar Þorgeirsson rautt spjald þegar hann braut á Kristinni Steindórssyni innan teigs. Víti og rautt dæmt og Kristinn steig sjálfur á punktinn. Hann skoraði af miklu öryggi úr vítinu og fullkomnaði þrennuna. 3-1 staðan og þar við sat.

Leik Þórs og FH sem átti að fara fram var frestað og var settur á mánudagskvöldið klukkan 19.15. Nýustu fregnir herma að þeim leik hafi einnig verið frestað og ekki víst hvenar þessi lið mætast.

Þetta er staðan eftir 5.umferðir. Leikir spilaðir er fremmritalan en aftari eru stigin.

1.
    KR 5 11
2.    ÍBV 5 10
3.    Valur 5 9
4.    Stjarnan 5 8
5.    Keflavík 5 8
6.    Breiðablik 5 7
7.    Fylkir 5 7
8.    Víkingur R. 5 6
9.    FH 4   5
10.    Grindavík 5 4
11.    Þór 4 3
12.    Fram 5 1