Pepsideild karla: KRingar að stinga af
8.6.2011 | Boltinn
Svo virðist sem KR ingar séu með sterkasta liðið í deildinni í ár en
eftir sigur á birkarmeisturum FH í gærkvöldi þá eru þeir komnir með
fjögurra stiga forystu í deildinni. KR sem ekki hefur unnið FH á heimavelli sínum síðan 2003 lögðu grýlunni og unnu tvö núll, á heimavelli sínum í Vesturbænum. Það voru þeir Viktor Bjarki Arnarsson og Baldur Sigurðsson sem skoruðu mörkin í síðari hálfleik eftir að Mattíhas Vilhjálmsson misnotaði víti um miðjan seinni hálfleik.
Íslandsmeistarar Breiðabliks og Fram gerðu jafntefli á Kópavogsvelli
1-1. Hinn öflugi Kristinn Steindórsson kom Blikum yfir, en Arnar
Bergmann Gunnlaugsson jafnaði og hann hefur skorað öll fjögur mörk Fram í
deildinni.
Þórsarar unnu ÍBV, 2-1 á Akureyri. Fyrir heimamenn komu David Disztl og Sveinn Elías Jónsson Þór í 2-0, en Ian Jeffs minnkaði muninn fyrir Eyjamenn.
KRingar eru að stinga af og hafa nú 4 stiga forystu og eru efstir í deildinni með 17 stig, en ÍBV og Fylkir eru í næstu sætum með 13 stig. Valur er í fjórða sæti með 12 stig, Stjarnan hefur 11 og FH er í 6. sæti með átta stig. Víkingur og Þór eru í tíunda og ellefta sæti með sex stig og Fram er neðst með tvö stig.