U21 ára liðið í B-styrkleikaflokki - Dregið á föstudag
8.9.2010 | Boltinn
UEFA tilkynnti í dag hvernig raðað er í styrkleikaflokka þegar dregið verður í umspilinu fyrir úrslitakeppni Evrópumóts U21 ára landsliða hjá U21 karla. Dregið verður á föstudaginn í Herning í Danmörku og hefst drátturinn kl. 10:30 á okkar tíma.
Ísland er í B-styrkleikaflokki en sjö þjóðir skipa hvorn flokk og geta þjóðir í sama flokki, ekki dregist saman. Eins getur Ísland ekki dregist gegn Tékklandi þar sem þessar þjóðir voru saman í riðli í undankeppninni.
Farið var eftir árangri í tveimur síðustu keppnum þegar raðað var í flokka en einungis sigurvegarar riðlanna gátu lent í A - flokki.
A - styrkleikaflokkur:
* Svíþjóð
* Holland
* Tékkland
* Rúmenía
* Ítalía
* Króatía
* Skotland
B-styrkleikaflokkur:
* Grikkland
* Sviss
* Úkraína
* Spánn
* England
* Hvíta Rússland
* Ísland